28.11.2023 | 12:04
Böl
Á góðviðrisdegi ég datt inn á bar
Drakk ég þar öl og smá eplavínsglundur
Vegbúi nokkur sem var staddur þar
Vatt sér upp að mér og öskraði "FUNDUR!"
Heimtaði kauði að ég hlustaði á
Meðan hann fór með munninum orðum að æla
Hreinlega allt sem að heyrði ég þá
Var hrikalegt þvaður og endemis þvæla
Af heyskap og bústörfum heyrði ég nóg
Hrútspúngar súrir vízt flokkast sem fæða
Greinargóð lýsing af grisjuðum skóg
Og glæsileg frásögn af bónda að sæða
Sögur af hænsnum og svæsinni geit
Sígrænum högum og marglitum skeljum
En auðséð, þá var þessi asni úr sveit
Og andremman á við fullt haughús frá beljum
Nú sjaldan eða aldrei ég sagt hef um neinn
Særandi hluti sem berast um gilið
En djöfulsins fífl þetta drekka má einn
Drulludelinn á það hreinlega skilið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.